Fréttir




Þórunn Berglind Elíasdóttir, Ófeigur Gústafsson, Andrea Rut- og Ásdís Birta Ófeigsdóttir. Þetta erum við í hnotskurn, hver með sinni bragðtegund. Velkomin að kíkja á okkur :)






Þegar við komum heim úr vinnunni var Offi kominn heim, við mættum inn allir að faðma hæ og fegnar að sjá hann og hann okkur. Offi áhvað að hoppa út í smók þegar Ásdís sneri sér að honum setti skeifu og sagði : pabbi flugvélin ( Hún hélt að Offi væri að fara aftur). Offi hló og sagði nei bara rétt að fara út á tröppur. Þá snéri mín sér við og fór að leika kát. Stelpunum fannst æðislegt að fá hann heim þvílík værð hef ég ekki fundið lengi. Þetta var æðisleg vika var allt of stutt. Nú er bara að telja niður sem eftir er og ganga frá íbúðinni svo það verði auðvelt að flytja (henda út dóti sem ekki á að fara með). Seinasta tækifæri að fá sér La Kaffi Beggu :)
Já Andreu gengur bara vel í skólanum. Hún á fullt af vinum og gengur vel að lesa, skrifa og reikna. Ég er svo stolt af henni. Hún stendur sig eins og hetja. Henni hlakkar svo til að flytja austur til að vera meira með pabba sínum, hún sakknar hanns svo. Líka að fara í nýju íbúðina og fá sér herbergi.